Friday, February 25, 2005
þetta var semsagt Berglind sem þurfti aðeins að fá að tjá sig um málið! veit nú ekki hvaðan hún fékk þá flugu í hausinn að ég vildi enga gelaða hnakka inn í herbergi til mín.... veit nú ekki betur en ég búi með einum;) ekki illa meint Dagur;) en allaveg já þá er að koma árshátíð og mun hún vera haldin á Selfossi og Paparnir og svitabandið eru að spila! það verður gist á hótel selfossi og etið dýrindis máltíð og allt þetta (rúta,matur,ball og gisting) fyrir aðeins 7700 fyrir þá sem eru í námunni og nemendafélaginu sem ég er núna(var að skrá mig í námuna)!! En nú fer alveg að koma tími!!
sjáumst seinna
Posted at 25.2.05 by erna87
Permalink
ég var að búa til nýtt..... blog.central.is/rullugardina
Posted at 25.2.05 by erna87
Permalink
Tuesday, February 15, 2005
ussss...... ég er í sögutíma núna og það er brjálað að gera;) ..... forn griklkir hvað..... ég veit ekki neitt:)
var að vona að við fengjum prófið en NEI hann gat ekki verið búinn að fara yfir það!!! tók einmitt próf í þessu á föstudaginn og já ekki meir um það!!
ég ætti auðvitað að vera að læra núna en ég bara skil ekki hvað kallinn er að segja, hann er svona u.þ.b að kafna í skegginu á sér!!! skelfilegt að hlusta á þetta. en svona er lífið.... var að fá útúr 3 prófum í dag og viti menn mér gekk bara fínt ( á minn mælikvarða) náði þeim öllum! og svo fór ég í bóklegt badminton próf í morgun.
En það er allt vitlaust þarna á ísafirði..... hvað var eiginlega í gangi þarna!! ég var nátúrulega ekki á leiknum en þetta getur ekki verið svona slæmt ha!! Það er endalaust sett út á Hlyn og Bárð... æji ég veit ekki....þetta er nú meiri vitleysan!! það er alltaf hægt að kennar dómurunum um leikinn og það hafa allir gert það!!!
Svo er nú megavika á dominos núna og brjálað að gera og ég er að vinna öll kvöld í þessari viku og svo verður okkur boðið í bío:) á fokkerana.... ég er samt búin að sjá hana
en allavega ég ætla að fara að læra um pýþagóras og co
out
Posted at 15.2.05 by erna87
Permalink
Friday, February 11, 2005
uss þetta er nú meira ruglið......
föstudagur og tvö helvítis próf í dag og bæði drulluerfið..... búin í einu sem var næringarfræði og já ég verð ánægð ef ég slefa það shit hvað ég er illa stödd í þessum áfanga.... verð að taka mig á!!! þetta gengur ekki..... næsta próf saga 103 sem er náttúrulega algjör steypa, það fer allt inn um eitt eyra og út um hitt:) glatað case......nenni samt ekki að falla í henni þá þarf ég taka hana aftur!!! þetta er svona eitt að tilgangslausustu fögum sém ég hef verið í eins og listasaga, bara ennþá erfiðari og leiðinlegri og alveg skelfilegur kennari í þokkabót.... það er allt á móti mér í þessu og ef ég man rétt þá fékk ég 1,5 í listasögu!! gjörsamlega glatað!!! það er eitthvað samsæri í gangi hérna hjá kennurum , það er eins og þau vilji að við föllum ég var til dæmis í 4 mikilvægum prófum í þessari viku og svo er stórt verkefnaskil á mánudaginn.....og próf!!!! alveg glatað!!
allavega ömurleg vika að baki og mikil vinnuvika framundan...... á dominos.... GREAT!!!
OUT....
Posted at 11.2.05 by erna87
Permalink
Saturday, January 29, 2005
jæja þá er maður bara í holminum.....að passa!!
gömlu hjónin fóru á þorrablót og ég sit heima með börn úr öllu hverfinu:) bara gaman að því....
ég fór á mjög spennandi körfuboltaleik áðan... Snæfel-Ír ungligaflokur! Snæfell hafði þá! mjög jafn leikur og mjög gaman að fylgjast með honum!!
skellti mér líka í grundarfjörð í dag að heimsakja litlu frænku! keyrði svo fram hjá skólanum.... og ég bara á ekki til orð fir þessum ógeðslega lit og byggingunni!! skelfilegt!!
Svo er það bara Snæfell-Skallagrímur á morgun í fjárhúsinu!! án efa skemmtilegur leikur!!
áfram Snæfell
out
Posted at 29.1.05 by erna87
Wednesday, January 19, 2005
nei þetta er ekki rétti liturinn fyrir mig.... bleikt!! nei hann fer í taugarnar á mér!
ég er í svona skyndilegu gati, Ensku kennarinn veikur! kannast einhver við það;) ?
.... og ég sem lærði heima:( alveg til einskis!!
skellti mér á leik í keflavík á mánudaginn.... og síðan ekki söguna meir!! jújú byrjaði fínt en svo fór eitthvað ekki að ganga upp og leikurinn fór út um þúfur:( en það klikkaði ekki að það er alltaf eitthvað bögg í þessum keflvíkingum.... en svona er það bara;) gaman að því!!
það er alltaf sama skítaveðrið hér í höfuðborg íslands, drullukalt og slapp útum allt!! en það er víst bara venjulegt segja borgarbörnin sjálf! maður verður þá bara að hætta að kvarta og gera eins og pólverjarnir (kaupa sér bara kuldagalla) .....hehe.
jæja ætla að kíkja aðeins og sportið(það er örugglega allt vitlaust þar) áður en ég fer í tíma!!
out
Posted at 19.1.05 by erna87
Permalink